Fótbolti

Mikilvægur sigur hjá Viborg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúrik Gíslason, til vinstri, í leik með íslenska U-21 landsliðinu.
Rúrik Gíslason, til vinstri, í leik með íslenska U-21 landsliðinu.
Viborg vann mikilvægan 1-0 sigur á Lyngby í dönsku B-deildinni í dag. Sigurmarkið kom í uppbótartíma.

Rúrik Gíslason var í byrjunarliði Viborg en tekinn af velli á 65. mínútu. Hann er nýbúinn að jafna sig á meiðslum.

Viborg er nú í öðru sæti deildarinnar með 51 stig eftir 24 leiki. Herfölge er í efsta sætinu með 52 stig og Silkeborg í því þriðja með 50 en bæði hafa leikið 23 leiki.

Efstu tvö liðin komast upp í dönsku úrvalsdeildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×