Sport

Búist við mikilli spennu í kvennaflokki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Kristmannsson og Fríða Rún Einarsdóttir verða í eldlínunni um helgina.
Viktor Kristmannsson og Fríða Rún Einarsdóttir verða í eldlínunni um helgina. Mynd/Valli

Íslandsmótið í áhaldafimleikum fer fram um næstu helgi og er í umsjá Bjarkanna í Hafnarfirði. Að þessu sinni verður keppt verður eftir nýju fyrirkomulagi þar sem að krýndir verða Íslandsmeistarar í fullorðins flokki og unglingaflokki.

Viktor Kristmannsson og Thelma Rut Hermannsdóttir hafa titil að verja en þau urðu Íslandsmeistarar í fyrra þar af var Viktor að vinna Íslandsmótið í fjölþraut sjötta árið í röð.

Það er búist við mikilli keppni í kvennaflokki þar sem að þrjár af sigursælustu fimleikakonum landsins mæta allar til leiks.

Thelma Rut Hermannsdóttir varð fimmfaldur Íslandsmeistari í fyrra en fær nú mikla samkeppni frá Fríðu Rún Einarsdóttur (sexfaldur Norðurlandameistari 2007) og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur sem er margfaldur Íslandsmeistari en hún er að koma til baka eftir langt hlé.

Fríða er að snúa aftur eftir erfið meiðsli en árangur Fríðu á Norðurlandamótinu 2007 er besti árangur íslenskrar fimleikakonu, í unglingaflokki, fyrr og síðar. Fríðu hefur ekki enn tekist að landa Íslandsmeistaratitlinum en það gæti breyst um helgina.

Viktor Kristmannsson er sigurstranglegastur hjá körlunum en hefur hann unnið titilinn alls sjö sinnum en nú fær hann örugglega mikla keppni frá Dýra Kristjánssyni sem mætir aftur til leiks.

Dýri er aldursforseti mótsins, 29 ára gamall. Hann vann titilinn 1999 og 2000 ásamt því að koma öllum að óvörum og taka silfurverðlaun í fyrra, en þá hafði hann ekki keppt í fjölda ára.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×