Körfubolti

Stjörnumenn bregða á leik fyrir bikarúrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Justin Shouse og fleiri leikmenn Stjörnunnar fara á kostum í umræddu myndbandi.
Justin Shouse og fleiri leikmenn Stjörnunnar fara á kostum í umræddu myndbandi. Mynd/Stefán

Stjörnumenn eru byrjaðir að hita upp fyrir úrslitaleikinn í bikarkeppni karla sem verður gegn KR í Laugardalshöll um helgina.

Nokkrir Stjörnumenn hafa sett saman myndband þar sem Páll Ásgrímur Jónsson, betur þekktur sem Páló, er í aðalhlutverki ásamt Teiti Örlygssyni þjálfara sem og leikmönnum Stjörnunnar í meistaraflokki karla Páló er einn helsti stuðningsmaður Stjörnunnar og lætur sig sannarlega ekki vanta um helgina.

Myndbandið er endurgerð á frægri auglýsingu frá Icelandair þar sem Ari Matthíasson lék mann sem dreymdi um að leika með íslenska landsliðinu í knattspyrnu.

Myndbandið má sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×