Ítalía: Þrjú rauð spjöld í Rómareinvíginu 11. apríl 2009 15:04 Mauro Zarate fagnar marki sínu gegn Roma í dag AFP
Það er jafnan hiti í kolunum þegar grannliðin Lazio og Roma eigast við í ítalska boltanum. Einvígi liðanna í dag var engin undantekning og lauk leiknum með 4-2 sigri Lazio þar sem þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið. Þetta var 132. grannaslagur liðanna á Ólympíuleikvangnum í Róm og þurftu bæði lið nauðsynlega á sigri að halda. Goran Pandev og Mauro Zarate tryggðu Lazio óskabyrjun í leiknum með tveimur mörkum á fyrstu fjórum mínútum leiksins, en Philippe Mexes minnkaði muninn fyrir Roma á 10. mínútu. Stepan Lichtsteiner kom Lazio í 3-1 á 58. mínútu en eftir það fór að hitna í kolunum. Þeir Christian Panucci og Philippe Mexes hjá Roma og Francesco Matuzalem hjá Lazio fengu allir að líta rauða spjaldið rúmlega 20 mínútna kafla í síðari hálfleik. Þegar 10 mínútur lifðu leiks minnkaði Daniele De Rossi muninn fyrir Roma en það var svo Aleksandar Kolarov sem innsiglaði sigur Lazio þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Meistaraefnin í Inter urðu að sætta sig við 2-2 jafntefli heima gegn Sikileyingunum í Palermo. Mario Balotelli og Zlatan Ibrahimovic komu Inter í 2-0 í fyrri hálfleik, en tvö mörk með þriggja mínútna millibili undir lokin tryggðu Palermo jafntefli. Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í 2-1 sigri Fiorentina á Cagliari. Í kvöld mætast Genoa og Juventus. Inter hefur hlotið 73 stig og situr í toppsæti deildarinnar. Juventus er tíu stigum á eftir í öðru sætinu og Milan hefur 61 stig í þriðja sætinu. Fiorentina er í fjórða sætinu með 55 stig og Genoa í fimmta með 54 stig.
Ítalski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira