Stórleikur James tryggði Cleveland sigur 25. janúar 2009 11:42 LeBron treður með tilþrifum í Salt Lake City í nótt AP
Cleveland hefur bestan árangur allra liða í NBA deildinni og í gærkvöld lauk liðið fjögurra leikja ferðalagi um Vesturdeildina með góðum 102-97 sigri á Utah. Cleveland tapaði fyrsta leiknum í ferðinni gegn LA Lakers en hefur síðan unnið þrjá í röð. Liðið hefur unnið 34 leiki og tapað aðeins 8 og hefur unnið 14 af 16 leikjum á móti liðum úr Vesturdeildinni. LeBron James tryggði Cleveland sigur á Golden State með skoti um leið og leiktíminn rann út í síðasta leik, en hann þurfti ekki á slíkum hetjuskap að halda í nótt. Hann átti hinsvegar stórleik með 33 stigum, 14 fráköstum og 9 stoðsendingum og var aðeins einni stoðsendingu frá því að ná þriðju þrennu sinni í þessum mánuði. Paul Millsap var sterkur hjá Utah með 24 stig og 15 fráköst. Orlando tapaði öðrum leik sínum í röð þegar liðið lá fyrir grönnum sínum í Miami 103-97. Dwyane Wade skoraði 27 stig fyrir Miami en Dwight Howard var með 22 stig og 10 fráköst fyrir Orlando. Philadelphia endurheimti Elton Brand úr meiðslum og sigraði New York 116-110. Nate Robinson skoraði 26 stig fyrir New York en Andre Iguodala 24 fyrir Philadlephia. New Jersey lagði Memphis á útivelli 99-88, Milwaukee lagði Sacramento 106-104 og Portland lagði Washington 100-87. Staðan í NBA
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira