Af Ian Rush og Ragnari Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 1. apríl 2009 00:59 Sú fígúra sem lýsir einna best innréttingu okkar Íslendinga er án efa Ragnar litli Reykás. Það er alveg skelfilegt hvað sviptivindarnir innra með landanum sveigja hann til og frá. Þetta gengur náttúrulega ekki. Það er til dæmis ekki svo langt síðan við litum einungis við því nýjasta og besta og máttum aldrei vita af okkur nema á lista með hinum fremstu og bestu. Við vorum sjálf endalaust að núa okkur því um nasir að hinir og þessir væru komnir svo langt í einu eða öðru og við máttum aldeilis drífa okkur svo að fornaldir bitu okkur ekki í afturendann. Það mátti því aldrei slá slöku við eitt andartak. Síðan kom bankahrunið og í óöryggi okkar fórum við að óska eftir gömlu góðu dögunum þegar við vissum hver við vorum og hvað við áttum. Við óskuðum okkur svo heitt að við fórum örugglega meira en áratug aftur á bak. Að minnsta kosti eru landsfundir þriggja stærstu stjórnmálaflokkanna nýafstaðnir og var ekki annað á þeim að sjá en að þjóðin hefði legið í súr í meira en áratug. Á einum fundinum bar það helst til tíðinda að Steingrímur sagðist ekki ætla að sænga hjá Sjálfstæðismönnum, á öðrum var Davíð Oddsson að segja brandara og mönnum til syndanna áður en hann stappaði stálinu í mannskapinn og á þeim þriðja var Jóhanna Sigurðardóttir að fagna formannskjöri í Alþýðu…afsakið, Samfylkingunni (við Davíð eigum í nokkrum vandræðum með þetta nafn). Þó ég sé gamaldags þótti mér þessi fortíðarskammtur helst til stór svo ég fór í Spa í Laugum og var bara nokkuð nútímalegur á því. En hver kemur þá út úr gufubaðinu annar en Ian Rush, markakóngurinn mikli frá Liverpool. Hann var upp á sitt besta á níunda áratugnum þegar fótboltinn var ekki orðinn þessi peninga- og auglýsingamaskína sem hann er nú. Þá var Ipswich líka að keppa um efstu sætin sem gerði mig viðræðuhæfan þegar enska boltann bar á góma. Árið 1981 urðu þeir svo Evrópumeistarar félagsliða sem var alveg dásamlegt, jú, auðvitað er það alveg dásamlegt að dvelja aðeins við gamla daga, það er ekki spurning. Ég meina what"s the rush? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Þjóðin vill eitt, Kristrún annað Ole Anton Bieltvedt Skoðun Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi Þórir Garðarsson Skoðun Hversu lítill fiskur yrðum við? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Halldór 17.05.2025 Halldór Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza! Viðar Eggertsson Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun