Skoðun

Spilin sem enginn vill fá

Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar

Þau eru misjöfn spilin sem við fáum í lífinu og það fer eftir okkur sjálfum hvernig við spilum úr þeim. Þau geta veitt okkur mikla gleði og trompað lífið en á sama tíma getum við dregið spil sem við höfum engan áhuga á að hafa á hendi. Ófrjósemi er eitt af þeim spilum sem 1 af hverjum 6 pörum fá í lífinu og það eru spil sem enginn vill hafa á hendi. Þegar fólk fær slík spil í hendurnar er líklegt að framundan sé löng og erfið vegferð framundan.

Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem inniheldur blóð, svita og tár (og tóman bankareikning).

Einstaklingar sem hafa þurft aðstoð til þess að eignast börn vita að væntingar eru miklar og vonin alltaf til staðar í þessu ferli. Að vona er gott en það sem vonin gerir er að hún oftar en ekki yfirtekur allar hugsanir. Vonin sem lætur mann ímynda sér jákvætt óléttupróf, settan dag, nöfn og framtíðina sem eintóma gleði. Þegar svo kemur að skuldadögum og ein lína birtist í stað tveggja á óléttuprófi hverfa allir draumar og sorgin tekur við. Sorgin og reiðin. Ekki bara yfir neikvæðu prófi heldur yfir því að hafa leyft huganum að fara of langt í framtíðina. Yfir því að hafa haldið það fast í vonina, byrja að skoða mikilvægar dagsetningar, barnarúm og skreppa eina ferð í Barnaloppuna. Keyptar barnavörur verða svo settar í kassa þangað til þær verða vonandi einn daginn nýttar.

Að halda áfram er erfitt en með vonina um barn í fangi heldur maður áfram. Þangað til að bankareikningurinn segir stopp. Það er ekki ódýrt að reyna að eignast barn. Kostnaðurinn er misjafn en reynir alltaf mikið á heimilisbókhaldið. Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða og þurft að taka hlé til þess að safna fyrir framhaldinu. Styrkir eru lágir og fáir, einungis dropar í hafið. Við höfum ekki tekið saman nákvæmar tölur um eyðslu okkar í ófrjósemis-heiminum, en sú tala myndi ég giska að væru upp á milljónir. Peningur sem hefði getað farið inn á húsnæðislánið, framkvæmdir eða í utanlandsferðir.

Á Íslandi er staðan sú að pör og einstaklingar sem glíma við ófrjósemi þurfa að borga mun meira úr vasa en nágrannar okkar á Norðurlöndunum. Eftir mjög stutta leit á netinu kom t.d. í ljós að í Danmörku fær fólk fyrstu sex glasameðferðir fríar á meðan hér heima kostar hver meðferð u.þ.b. 630.000kr með einhverri niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum. Sú niðurgreiðsla er þó einungis dropi í hafið fyrir marga, en uppsetningar á frystum fósturvísum eru t.d. ekki niðurgreiddar. Einnig er vert að nefna alls kyns önnur gjöld eins og lyfjakostnað, geymslugjöld osfrv.

Í byrjun nóvember verður vitundarvakning Tilveru, samtök um ófrjósemi. Samtök sem fáir vita af en sinna mikilvægum störfum til stuðnings þeirra sem glíma við ófrjósemi. Ófrjósemi er einmanalegur sjúkdómur en Tilvera reynir að hlúa að meðlimum sínum með stuðningskvöldum og með því að berjast fyrir réttindum þeirra.

Höfundur er nýr stjórnarmeðlimur Tilveru, en hefur verið óviljugur þáttakandi í heimi ófrjóseminnar síðan 2018.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×