Körfubolti

Ivey ævintýrið gekk upp hjá Snæfelli - unnu Keflavík með 22 stigum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Daníel
Snæfellingar jöfnuðu úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn á móti Keflavík með sannfærandi 22 stiga sigri, 91-69, í öðrum leik liðanna í Stykkishólmi í kvöld. Liðin hafa því byrjað lokaúrslitin á því að bursta hvort annað í fyrstu tveimur leikjunum. Næsti leikur er í Keflavík á laugardaginn.

Snæfellingar flugu með Jeb Ivey frá Reykjavík til Stykkishólms og hann náði því í Hólminn í tæka tíð fyrir leikinn og þetta mikla ævintýri fyrir leikinn virtist ekki trufla aðra leikmenn liðsins. Ivey átti fínan leik og var með 13 stig og 4 stoðsendingar en bestu menn liðsins voru þó Sigurður Þorvaldsson (29 stig) og Hlynur Bæringsson (13 stig, 16 fráköst og 6 stoðsendingar).

Snæfell byrjaði betur, komst í 3-0, 10-7 og 15-9 en liðið var síðan 24-18 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Pálmi Freyr Sigurgeirsson byrjaði sem leikstjórnandi hjá Snæfelli og var með fimm stoðsendingar í leikhlutanum en Jeb Ivey kom fyrst inn í leikinn í stöðunni 17-11.

Keflavík skoraði fimm fyrstu stig annars leikhluta, minnkaði muninn í 24-23 og virtist vera komið í gang en þá svöruðu heimammenn með frábærum kafla þar sem Keflavík skoraði ekki í tæpar fimm mínútur.

Snæfell skoraði þarna 19 stig í röð og komst síðan mest 25 stigum í leikhlutanum, 50-25, áður en gestirnir úr Keflavík náðu muninum niður í 19 stig fyrir hálfleik.

Snæfell var 54-35 yfir í hálfleiks en Sigurður Þorvaldsson skoraði 21 stig í hálfleiknum og Hlynur Bæringsson varmeð 9 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar.

Keflavík kom muninum niður í sextán stig um miðjan þriðja leikhluta en lengra komust þeir ekki og Snæfell var komið 26 stigum yfir, 74-48, fyrir lokaleikhlutann. Jeb Ivey byrjaði 4. leikhlutann síðan á því að setja niður tvö tæknivíti eftir að Guðjón Skjúlason, þjálfari Keflavíkur hafði fengið tæknivillu milli 3. og 4. leikhluta. Fjórði leikhlutinn var síðan formsatriði þar sem Snæfellingar lönduðu öruggum sigri.



Snæfell-Keflavík 91-69 (54-35)

Stig Snæfells: Sigurður Á. Þorvaldsson 29/4 fráköst, Martins Berkis 16, Hlynur Bæringsson 13/16 fráköst/6 stoðsendingar, Jeb Ivey 13, Jón Ólafur Jónsson 8/5 fráköst, Páll Fannar Helgason 5, Emil Þór Jóhannsson 4/4 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 2, Gunnlaugur Smárason 1.

Stig Keflavíkur: Uruele Igbavboa 15/6 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Gunnar Einarsson 14, Hörður Axel Vilhjálmsson 11/4 fráköst/7 stoðsendingar, Draelon Burns 8, Davíð Þór Jónsson 2, Gunnar H. Stefánsson 2, Sverrir Þór Sverrisson 2, Jón Nordal Hafsteinsson 1/6 fráköst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×