Körfubolti

NBA: Denver lagði Utah

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carmelo Anthony í leiknum í nótt.
Carmelo Anthony í leiknum í nótt. Mynd/AP
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Denver minnkaði muninn í rimmu sinni gegn Utah og Milwaukee tók forystuna í einvíginu gegn Atlanta.

Denver vann Utah, 116-102, í fimmta leik liðanna í nótt og minnkaði þar með muninn í 3-2. Utah getur þó tryggt sér sæti í undanúrslitunum í Vesturdeildinni með sigri á heimavelli á morgun.

Leikurinn var jafn framan af en Denver náði að síga fram úr í fjórða leikhluta. Carmelo Anthony var með 26 stig og ellefu fráköst og Chauncey Billups með 21 stig. Kenyon Martin var með átján stig og níu fráköst.

Hjá Utah voru þeir Deron Williams og Carlos Boozer atkvæðamiklir. Williams var með 34 stig og tíu stoðsendingar og Boozer með 25 stig og sextán fráköst.

Mestu munaði í leiknum að aðrir leikmenn Utah náðu sér ekki á strik. Paul Millsap var eini varamaður Utah sem skoraði í leiknum en hann var með sextán stig. Kyle Korver lék til að mynda í 20 mínútur án þess að skora. Bekkurinn hjá Denver skilaði 37 stigum.

Denver varð reyndar fyrir áfalli þegar að Nene virtist meiðast illa á hné í öðrum leikhluta. Hann kom ekki meira við sögu í leiknum og óvíst hversu alvarleg meiðsli hans eru.

Milwaukee getur tryggt sér sigur í rimmu sinni gegn Atlanta með sigri á heimavelli á morgun. Það varð ljóst eftir að Milwaukee vann óvæntan sigur á Atlanta á útivelli í nótt, 91-87.

Atlanta komst í 2-0 í einvíginu og hafði reyndar unnið fjórtán leiki í röð á heimavelli fyrir leikinn í nótt.

Atlanta komst í tíu stiga forystu í upphafi fjórða leikhluta en Milwaukee minnkaði muninn hægt og rólega. Vendipunkturinn kom svo þegar rúmar tvær mínútur voru eftir og Kurt Thomas fiskaði ruðningsvillu á Joe Johnson. Milwaukee skoraði næstu sex stig í leiknum og tryggði sér þar með sigurinn.

Brandon Jennings var stigahæstur hjá gestunum með 25 stig og John Salmons var með nítján. Varamaðurinn Primoz Brezec skoraði fimmtán stig.

Hjá Atlanta var Al Horford stigahæstur með 25 stig auk þess sem hann tók ellefu fráköst. Marvin Williams var með 22 stig og Johnson þrettán.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×