Körfubolti

Durant framlengir við Oklahoma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Stuðningsmenn Oklahoma City Thunder höfðu ástæðu til þess að gleðjast í dag er Kevin Durant tilkynnti á Twitter-síðu sinni að hann væri búinn að samþykkja nýjan fimm ára samning við félagið.

"Guð er góður. Ég og fjölskylda mín höfum þurft að koma langa leið," sagði Durant einnig.

Durant sló heldur betur í gegn á síðustu leiktíð í NBA-deildinni með Oklahoma City Thunder.

Hann leiddi þetta lið inn í úrslitakeppnina þar sem meistarar LA Lakers máttu hafa mikið fyrir því að skófla þeim úr keppninni.

Durant varð stigahæstur í deildinni og augu margra verða á honum og Oklahoma á næstu leiktíð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×