Körfubolti

Spiluðu væmið Phil Collins lag þegar þeir kynntu Miami-liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ofurþríreykið hjá Miami Heat í kynningunni.
Ofurþríreykið hjá Miami Heat í kynningunni. Mynd/AP
Það vakti athygli sumra þegar ofurþríeykið var kynnt til leiks í fyrsta heimaleik Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta í nótt að plötusnúðurinn sótti væmið lag úr smiðju Phil Collins til að spila undir kynningunni.

Þegar þeir LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh voru kynntir til leiks þá söng Phil Collins lagið sitt "In the Air Tonight" en eins og sjá má á myndinni sem hér fylgir þá fengu þeir félagar að sjálfsögðu stjörnumeðferð í kynningunni.

Miami-menn trúa því nefnilega eins og margir körfuboltaáhugamenn að margfaldir meistarar séu að fæðast á South Beach á Flórída eftir að LeBron James ákvað að ganga til liðs við Dwyane Wade. Það er eitthvað í loftinu og Heat fékk Phil Collins til að leggja áherslu á það.

Höllin í Miami var að sjálfsögði troðfull og hér má sjá upptöku eins áhorfandans á kynningunni. Þessi stuðningsmaður Miami fékk þó ekki miða nema upp í rjáfum og sést kynningin því ekkert alltof vel.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×