Íslenski boltinn

Gunnar Kristjánsson í byrjunarliði KR í Úkraínu

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson. Fréttablaðið/Rósa
Gunnar Kristjánsson er í byrjunarliði KR sem mætir Karpaty í Úkraínu nú klukkan 16.15. Gunnar er á óskalista FH og mun ræða við Hafnarfjarðarliðið þegar hann kemur frá Úkraínu.

Þetta er fyrsti leikur Rúnars Kristinssonar með KR. Hann setur Kjartan Henry Finnbogason, Björgólf Takefusa, Viktor Bjarka Arnarsson og Guðmund Reyni Gunnarsson alla á varamannabekkinn.

Guðjón Baldvinsson leiðir framlínuna en Rúnar stillir eflaust fremur varnarsinnað upp í dag.

KR tapaði fyrri leiknum 3-0 hér heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×