Körfubolti

Sendið eftirrétti á borð Wade og klappið fyrir honum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Forráðamenn Miami Heat feta ótroðnar slóðir í viðleitni sinni til þess að halda ofurstjörnunni Dwyane Wade hjá félaginu.

Nýjasta nýtt er að félagið var að opna vefsíðu þar sem íbúar Miami eru hvattir til þess að leggja sitt af mörkum til þess að halda leikmanninum hjá félaginu.

Á síðunni, wewantwade.com, er meðal annars stungið upp á því að fólk sendi Wade eftirrétt sé það að borða á sama veitingastað og hann. Einnig er fólk hvatt til þess að standa upp fyrir honum og klappa ef það sér hann.

„Mér fannst þetta bráðfyndið framtak. Ég kann samt að meta það, ég kann virkilega að meta það," sagði Wade aðspurður um hvað honum þætti um síðuna.

Wade má tala við önnur félög frá og með 1. júlí og búast margir við því að hann yfirgefi Miami og reyni fyrir sér annars staðar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×