Íslenski boltinn

Fá 200 milljónir fyrir EM sæti - Enginn íslenskur samningur

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Geir Þorsteinsson.
Geir Þorsteinsson.
Norska landsliðið í knattspyrnu fær um 200 milljónir íslenskra, komist það alla leið á EM. Íslenska liðið hefur engan slíkan samning.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að ef Ísland kæmist alla leið yrðu leikmenn verðlaunaðir ríkulega þar sem KSÍ fengi þá umtalsverðar tekjur í kassann.

„KSÍ fengi umtalsverðar tekjur ef liðið kæmist þangað, leikmenn myndu njóta góðs af því," sagði Geir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×