Körfubolti

LeBron segist enn vera vinur Gibson

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það var mikill hiti í mönnum þegar LeBron James heimsótti sinn gamla heimavöll síðasta fimmtudag. Nokkuð var látið með það hvernig James kom fram við sína gömlu félaga á bekknum.

Stundum var hann að gantast við þá og eitt sinn virtist hann hreyta í einhverju í þá sem sátu á bekknum.

"Við þekkjum allir LeBron og vitum að honum líkar vel að vera fyrir framan myndavélina. Það var ýmislegt sagt þarna sem ekki er hægt að hafa eftir," sagði Daniel Gibson, leikmaður Cleveland, og hann á einnig að hafa sagt að hann væri ekki lengur vinur James.

"Sagði hann það í alvöru? Nú, það er skrítið. Ég er búinn að tala við hann og það er allt í góðu á milli okkar. Við erum enn vinir," sagði James.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×