The Town og fleira til 7. október 2010 09:00 Á hvíta tjaldið Jon Hamm og Blake Lively hafa getið sér gott orð fyrir leik í sjónvarpi. Nú eru þau komin á hvíta tjaldið í The Town.
Kvikmyndin The Town hefur fengið einróma lof gagnrýnenda en leikstjóri hennar og aðalleikari er Ben Affleck. Svo langt hafa gagnrýnendur gengið að orða Affleck við Óskarinn í tveimur flokkum; sem besti leikarinn og besti leikstjórinn. Kvikmyndin verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina en í stuttu máli segir hún frá hópi bíræfinna bankaræningja undir stjórn Doug MacRay sem hreinsar út úr bankastofnunum með reglulegu millibili. Hópurinn á allur rætur sínar að rekja til Charlestown-hverfisins í Boston, rétt eins og flestir skúrkarnir úr þeirri borg. Brestir koma í samstarfið þegar þeir neyðast til að taka bankastarfsmanninn Claire sem gísl þegar bankarán fer úr skorðum. MacRay ákveður að fullvissa sig um að Claire þekki sig ekki aftur en sú ákvörðun mun draga dilk á eftir sér. Auk Affleck fara sjónvarpsstjörnurnar Blake Lively og Jon Hamm með stór hlutverk í myndinni en Blake er orðin ofurstjarna eftir Gossip Girl ævintýrið. Jon Hamm ættu svo flestir að þekkja úr Mad Men. Af öðrum myndum sem verða frumsýndar um helgina má nefna Greenberg en þar má sjá Ben Stiller í alvarlegu hlutverki manns sem ákveður að gera ekki neitt og svo Furry Vengeance með Brendan Fraser. - fgg
Lífið Mest lesið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Sjá meira