Lífið

Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hugguleg.
Hugguleg. Dominic Lipinski/Getty Images

Bandaríska stórstjarnan Jennifer Lopez og breski leikarinn Brett Goldstein sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Ted Lasso eru að stinga saman nefjum. Sambandið er á algjöru frumstigi.

Þetta fullyrðir bandaríski slúðurmiðillinn PageSix. Miðillinn segir að þau hafi kynnst við tökur á Netflix myndinni Office Romance sem frumsýnd var síðasta sumar. Þau séu einungis rétt svo byrjuð að hittast og lætur miðillinn þess getið að þau hafi áður þvertekið fyrir að vera í sambandi.

Myndir af þeim Lopez og Goldstein þar sem þau yfirgáfu partý saman í Los Angeles í vikunni blésu hinsvegar lífi í sögusagnirnar að ný. Ónafngreindur heimildarmaður PageSix segir miðlinum að þau séu nýbyrjuð að hittast en þau eigi það sameiginlegt að elska að skemmta sér.

„Annað en fyrrverandi kærastinn hennar sem var alltaf með skeifu á sér þegar þau fóru út á meðal fólks,“ segir heimildarmaðurinn og vísar þar til Ben Affleck. Affleck og Lopez hættu saman í annað sinn árið 2024.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.