Körfubolti

Dallas stöðvaði Miami

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tólf leikja sigurhrina Miami Heat tók enda í nótt er liðið tapaði fyrir Dallas í æsispennandi leik. Dirk Nowitzki skoraði 26 stig fyrir Dallas og Jason Terry var með 19.

Dwyane Wade var stigahæstur hjá Miami með 22 stig en Miami var ekki að hitta vel í nótt eins og 40 prósent skotnýting ber vitni um.

"Það er frábært að halda góðu sóknarliði eins og Miami í aðeins 40 prósent skotnýtingu. Svæðisvörnin gekk vel og þeir urðu að taka mikið af þriggja stiga skotum. Kannski vorum við pínu heppnir," sagði Dirk Nowitzki eftir leikinn.

LeBron James fann sig engan veginn í leiknum og hitti aðeins úr 8 af 21 skoti sínu.

Úrslit næturinnar:

Atlanta-Orlando  91-81

Cleveland-Utah  90-101

Indiana-New Orleans  94-93

Washington-Charlotte  108-75

Miami-Dallas  96-98

San Antonio-Phoenix  118-110

Portland-Milwaukee  106-80

Golden State-Houston  112-121

LA Clippers-Minnesota  113-90

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×