Körfubolti

Bosh kemur til Miami og LeBron kannski á leiðinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wade og Bosh verða saman með Miami á næstu leiktíð.
Wade og Bosh verða saman með Miami á næstu leiktíð.

Miami Heat mun mæta sterkt til leiks í NBA-deildinni á næstu leiktíð en heimildir ESPN herma að Dwyane Wade ætli sér að vera áfram í herbúðum liðsins og að Chris Bosh ætli sér að spila með Wade hjá Heat.

Þá eru aðeins tveir feitir bitar eftir á leikmannamarkaðnum - LeBron James og Carlos Boozer. James gæti jafnvel líka farið til Miami.

Ekkert er enn vitað um peningamál leikmannanna. Munu þeir báðir fá stóra samninga eða eru þeir til í að sætta sig við lægri laun til að koma LeBron James að hjá félaginu? Þessum spurningum eru menn að velta upp vestanhafs í dag.

Ef Toronto tekur Michael Beasley fyrir Bosh þá gæti jafnvel verið pláss fyrir fína samninga til handa Wade, Bosh og James.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×