Körfubolti

Fær Stoudemire 100 milljónir dollara hjá NY Knicks?

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
GettyImages
Amare Stoudemire gæti fengið 17,2 milljónir dollara í laun á ári og samtals 100 milljónir dollara á fimm árum fyrir samning við New York Knicks. Viðræður eru í fullum gangi.

Stoudemire er laus undan samningi frá Phoenix Suns en Stoudemire var ekki fyrsti valkostur Knicks, og Knicks var ekki fyrsti valkostur Stoudemire.

Leikmaðurinn getur þó vart kvartað, launin er gríðarlega há og hann hefði getað verið áfram hjá Suns.

Það vildi hann ekki og því eru allar líkur á að hann spili með Knicks á næsta tímabili.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×