Körfubolti

Æsispennandi Íslendingaslagur í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson var góður með Sundsvall í gær.
Hlynur Bæringsson var góður með Sundsvall í gær. Mynd/Stefán
Sundsvall Dragons hafði betur gegn Uppsala Basket í æsispennandi leik í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær, 88-87, á útivelli.

Jakob Sigurðarson skoraði nítján stig fyrir og Hlynur Bæringsson tólf fyrir Sundsvall sem tryggði sér sigurinn í leiknum með þriggja stiga körfu þegar þrettán sekúndur voru til leiksloka.

Helgi Már Magnússon skoraði fjögur stig fyrir Uppsala að þessu sinni.

Með sigrinum jafnaði Sundsvall Uppsala að stigum en bæði lið eru með fjórtán stig í 3.-5. sæti deildarinnar.

LF Basket og Södertälje eru í efstu tveimur sætunum með átján stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×