Körfubolti

Snæfell enn á toppnum og Tindastóll lagði Hamar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/Anton
Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/Anton

Snæfell er enn á toppi Iceland Express-deildar karla eftir sigur á ÍR í Seljaskóla í kvöld. Alls fóru fram þrír leikir í deildinni í kvöld.

Tindastóll er að vakna til lífsins og tók spútniklið Hamars í gegn í kvöld og sendi Hvergerðinga stigalausa heim aftur.

Keflavík vann síðan öruggan sigur á Haukum í Sláturhúsinu.

Úrslit kvöldsins:

Tindastóll-Hamar 92-78

Stig Tindastóls: Hayward Fain 23, Dragoljub Kitanovic 22, Sean Cunningham 17, Friðrik Hreinsson 9, Helgi Rafn Viggósson 8, Hreinn Birgisson 5, Halldór Halldórsson 5, Helgi Margeirsson 2.

Stig Hamars: Andre Dabney 23, Darri Hilmarsson 19, Snorri Þorvaldsson 9, Hilmar Guðjónsson 6, Ragnar Nathanaelsson 6, Bjarni Lárusson 6, Ellert Arnarson 5, Kjartan Kárason 3, Svavar Pálsson 1.

Keflavík-Haukar 101-88

Stig Keflavikur: Gunnar Einarsson 21, Hörður Axel Vilhjálmsson 20, Lazar Trifunovic 19, Valention Maxwell 16, Sigurður Þorsteinsson 14, Þröstur Leó Jóhannsson 10, Gunnar Stefánsson 1.

Stig Hauka: Gerald Robinson 28, Semaj Inge 17, Sævar Ingi Haraldsson 12, Davíð Páll Hermannsson 10, Örn Sigurðarson 6, Haukur Óskarsson 5, Sveinn Sveinsson 5, Óskar Ingi Magnússon 3, Emil Barja 2.

ÍR-Snæfell 94-107

ÍR: Kelly Biedler 30/11 fráköst, Nemanja Sovic 18/7 fráköst, Matic Ribic 10, Níels Dungal 10/5 fráköst, Vilhjálmur Steinarsson 9, Hjalti Friðriksson 8, Eiríkur Önundarson 6, Kristinn Jónasson 3/6 fráköst.

Snæfell: Sean Burton 26, Jón Ólafur Jónsson 24/6 fráköst/5 stoðsendingar, Emil Þór Jóhannsson 21, Ryan Amaroso 16/5 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12/11 fráköst, Atli Rafn Hreinsson 3/4 fráköst, Egill Egilsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 2/7 fráköst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×