Íslenski boltinn

Sölvi Geir fyrirliði íslenska landsliðsins

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sölvi er hér lengst til vinstri.
Sölvi er hér lengst til vinstri.
Sölvi Geir Ottesen verður fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum gegn Norðmönnum annað kvöld. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, greindi frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Sölvi spilar með FC Köbenhavn í Danmörku en hann er uppalinn í Fossvoginum hjá Víking.

Sölvi er 26 ára gamall og leikur sem miðvörður eins og aðalfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson sem er meiddur.

Í æfingaleiknum gegn Liechtenstein í ágúst var Heiðar Helguson fyrirliði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×