Körfubolti

Boston sló Cleveland úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
LeBron James og félagar eru komnir í sumarfrí.
LeBron James og félagar eru komnir í sumarfrí. Mynd/AP
Boston Celtics er komið áfram í úrslit Austurstrandarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir sigur á Cleveland á heimavelli í nótt, 94-85. Boston var þar með einvígi liðanna samtals 4-2.

Cleveland var með besta árangur allra liða í deildakeppninni í vetur og með einn allra besta körfuboltamann heims innanborðs, LeBron James, töldu margir að nú væri kominn tími á að Cleveland færi alla leið.

Boston, sem hefur verið í talsverðu basli í vetur, sýndi hins vegar að þeir eiga enn talsvert inni og sýndu leikmenn liðsins oft frábæra takta í rimmu liðanna.

„Þeir spiluðu ótrúlega vel," sagði LeBron James. Þjálfari Cleveland, Mike Brown, sagði muninn á liðunum vera einfaldann.

„Úrslitakeppnin er ekki eins og deildakeppnin. Við vissum að við myndum ekki mæta sama liðinu og spilaði í deildinni í vetur. Þeir bættu sig og við vorum að vona að við hefðum bætt okkur líka."

Það var sama hvað leikmenn Cleveland reyndu að ná tökum á leiknum í nótt - alltaf áttu heimamenn svar. Cleveland komst yfir í upphafi síðari hálfleiks en þá svaraði Boston umsvifalaust fyrir sig og var buið að endurheimta tíu stiga forystu áður en langt um leið.

James og félagar gáfust þó ekki upp en komust ekki nær en að minnka muninn í fjögur stig í fjórða leikhluta.

James var eins og svo oft áður stigahæstur (27 stig), með flestu fráköstin (19) og flestar stoðsendingar (10) af leikmönnum Cleveland en það dugði bara ekki til. Hann tapaði reyndar boltanum níu sinnum í leiknum og refsaði Boston fyrir hver mistök í leiknum.

Kevin Garnett var með 22 stig og Rajon Rondo 21. Paul Pierce og Rasheed Wallace voru með þrettán hvor.

Margir telja að Mike Brown, þjálfari Cleveland, verði nú látinn taka poka sinn en flestir bíða nú eftir því að sjá hvað LeBron James gerir í sínum málum. Hann hefur verið ítrekað orðaður við New York Knicks í vetur og eru margir sem velta því fyrir sér hvort körfuboltaævintýrinu í Cleveland sé einfaldlega lokið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×