Körfubolti

NBA: Miami aftur á sigurbraut

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sólstrandargæjarnir áttu fínan leik i nótt.
Sólstrandargæjarnir áttu fínan leik i nótt.

LeBron James og félagar í Miami Heat komust aftur á sigurbraut í nótt er þeir tóku á móti Washington Wizards. LeBron skoraði 30 stig, Dwyane Wade 26 og Chris Bosh var með 20.

Dallas vann Texas-slaginn gegn Houston frekar auðveldlega. Þetta var sjötti sigurleikur Dallas í röð. Dirk Nowitzki var með 20 stig og 10 fráköst og Jason Kidd gaf 11 stoðsendingar.

Oklahoma átti flotta endurkomu gegn New Orleans og landaði sætum sigri. Kevin Durant skoraðu 26 stig fyrir Oklahoma, reif niður 11 frákost og varði tvö skot.

Síðustu sex mínútur leiksins fóru 20-8 fyrir Oklahoma og þessi góði kafli dugði til sigurs.

Úrslit næturinnar:

Miami-Washington  105-94

Oklahoma-New Orleans  95-89

Dallas-Houston  101-91

Utah-MIlwaukee  109-88

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×