Körfubolti

Svali og Baldur lýsa leiknum saman í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AP
Svali H. Björgvinsson og Baldur Beck hafa skipts á að lýsa frá úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta á Stöð 2 Sport í vetur og þeir ætla lýsa saman lokaleiknum í kvöld þegar Los Angeles Lakers og Boston Celtics mætast í hreinum úrslitaleik um NBA-meistaratitilinn.

Þeir Svali og Baldur eru tveir af orðheppnustu lýsendum landsins og þeir munu örugglega krydda vel þennan spennandi úrslitaleik sem er aðeins fjórði oddaleikur um titilinn í NBA-deildinni undanfarin 25 ár.

Það verður því sannkölluð körfuboltaveisla á Stöð 2 Sport í kvöld þar sem meistarar síðustu tveggja ára spila um titilinn og mætast í sjöunda sinn á aðeins fjórtán dögum. Útsendingin hefst tíu mínútum í eitt og þá verður sýnt frá umfjöllun ABC fyrir leikinn.

Það er ekki víst að sigursælustu og sögufrægustu körfuboltalið NBA deildarinnar mætist aftur í hreinum úrslitaleik næstu áratugina og því er leikurinn í kvöld skylduáhorf fyrir körfuboltaáhugamenn.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×