Körfubolti

Kidd setti niður 20 metra flautukörfu - myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kidd er hér að fara að láta vaða.
Kidd er hér að fara að láta vaða. Mynd/AP

Jason Kidd, leikmaður Dallas Mavericks, skoraði ótrúlega körfu í lok fyrri hálfleiks þegar að Dallas vann LA Clippers í nótt.

Kidd fékk boltann þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka í eigin vítateig og lét einfaldlega vaða um leið og leikklukkan rann út. Hann tók skotið fyrir innan eigin þriggja stiga línu og setti niður ótrúlega körfu.

Myndband af körfunni má sjá hér, á heimasíðu NBA.

Þetta var einnig mikilvæg karfa því með henni tryggði hann Dallas tveggja stiga forystu í hálfleik, 49-47. Dallas hélt svo forystunni allan síðari hálfleikinn og vann örugglega, 99-83.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×