Sextándi hver íbúi á Vesturlandi er í kjöri 18. maí 2010 02:00 búðardalur Í Dalabyggð verður enginn listi í boði við kosningarnar í vor. fréttablaðið/ÓKÁ
Óvenjulega margir eru nú í framboði á Vesturlandi, en það helgast af því að í Dalabyggð er enginn listi í boði. Við slíkar aðstæður eru allir íbúar sveitarfélagsins, sem kjörgengir eru, í framboði, nema þeir sem setið hafa í sveitarstjórn og gefa ekki kost á sér. Þetta kemur fram í Skessuhorni, héraðsfréttablaði Vesturlands. Magnús Magnússon ritstjóri skrifar um þetta leiðara. Þar segir að sextándi hver íbúi héraðsins sé í framboði. „Samkvæmt mínum útreikningum gæti 991 íbúi á Vesturlandi verið í kjöri við kosningarnar í vor. Þar af eru rúmlega 500 í Dölum. Þetta er náttúrulega met og jafngildir því að sextándi hver íbúi í landshlutanum sé í kjöri. Á framboðslistum eru þó ekki nema 288 íbúar á Vesturlandi,“ segir Magnús í leiðaranum. Í kosningum til Alþingis árið 2009 voru 58.203 á kjörskrá í stærsta kjördæmi landsins, Suðvestur-kjördæmi. Hefði staðan verið eins þar og á Vesturlandi nú, hefðu 3.638 verið í kjöri. Athygli er vakin á því að ekki er verið að ræða um Norðvesturkjördæmi, heldur gamla Vesturlandskjördæmið. - kóp
Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira