Fótbolti

Strákarnir mæta Skotum í umspilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska 21 árs liðið fagnar hér einu af 29 mörkum sínum í undankeppninni.
Íslenska 21 árs liðið fagnar hér einu af 29 mörkum sínum í undankeppninni. Mynd/Anton
Íslenska 21 árs landsliðið í fótbolta dróst á móti Skotlandi í umspilinu um sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Danmörku næsta sumar. Leikirnir fara fram 8 og 12. október næstkomandi.

Ísland spilar fyrri leikinn á heimavelli en seinni leikurinn fer síðan fram í Skotlandi fjórum dögum síðar.

Íslenska liðið átti líka möguleika á að mæta Svíþjóð, Hollandi, Rúmeníu, Ítalíu, eða Króatíu.

Íslenska liðið varð fjórða og síðasta liðið inn í umspilið af þeim sem voru með bestan árangur í öðru sætinu og var í neðri styrkleikaflokknum.

Leikirnir í umspilinu eru eftirtaldir:

England - Rúmenía

Holland - Úkraína

Spánn - Króatía

Sviss - Svíþjóð

Ísland - Skotland

Tékkland - Grikkland

Ítalía - Hvíta-Rússland






Fleiri fréttir

Sjá meira


×