Körfubolti

Treyjan hans Kobe vinsælust

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Kobe Bryant er vinsælasti leikmaðurinn í NBA-deildinni því annað árið í röð seldist treyjan hans, með númerinu 24, mest allra. NBA greindi frá þessu í dag.

Næstvinsælasta treyjan var treyja LeBron James og þriðji vinsælasti leikmaðurinn er Kevin Garnett. Derrick Rose hjá Chicago Bulls náði fjórða sæti sölulistans í ár og Dwight Howard hjá Orlando varð fimmti.

Kevin Durant hjá Oklahoma komst í fyrsta skipti á topp tíu listann og endaði í níunda sæti. Carmelo Anthony stökk síðan úr fimmtánda sæti í það tíunda.

Lakers er líka vinsælasta lið deildarinnar og varningur tengdur liðinu seldist langmest í ár rétt eins og síðustu ár. Lakers-varningur hefur verið heitastur í sölu í sjö af síðustu átta árum.

Vinsælustu treyjurnar:

1. Kobe Bryant

2. LeBron James

3. Kevin Garnett

4. Derrick Rose

5. Dwight Howard

6. Dwayne Wade

7. Chris Paul

8. Paul Pierce

9. Kevin Durant

10. Carmelo Anthony

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×