Körfubolti

Jackson orðinn þreyttur á jóladagsleikjunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Phil Jackson.
Phil Jackson.

Það er hefð fyrir því að bjóða upp á stórleiki í Bandaríkjunum á hátíðardögum. Stóru liðin í bandarísku íþróttalífi líða fyrir það og þá sérstaklega LA Lakers sem virðist alltaf eiga leik á jóladag.

Phil Jackson, þjálfari Lakers, er orðinn þreyttur á þessum jóladagsleikjum.

"Þetta voru áður fáir leikir en nú er búið að fjölga þeim í sex," sagði Jackson en leikirnir eru reyndar fimm. Þar á meðal stórleikur Lakers og Miami.

"Mér finnst að það ættu allir að fá frí á jóladegi. Knattspyrnumenn spila ekki á þessum tíma. Þeir fá frí," sagði Jackson sem fylgist greinilega ekki vel með enska boltanum.

Kobe Bryant hefur verið í deildinni í 15 ár og tekið þátt í 13 jóladagsleikjum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×