Körfubolti

Boston getur tryggt sér titilinn annað kvöld

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Öll sund lokuð? Tony Allen í vandræðum í nótt.
Öll sund lokuð? Tony Allen í vandræðum í nótt. AP
Los Angeles Lakers er lent undir í fyrsta sinn í úrslitakeppninni þetta árið. Það kemur ekki á góðum tíma því Boston Celtics vann frábæran 92-86 sigur í leiknum í nótt og er því komið 3-2 yfir í einvíginu.

Leikurinn var í járnum allt til enda. Boston var yfir allan leikinn en hleypti mikilli spennu í hann undir lokin.

Þegar ein og hálf mínúta var eftir var Boston 87-82 yfir og með boltann. Það fór í sókn og lét klukkuna ganga vel. Loks kom lélegt þriggja stiga skot sem fór í spjaldið og liðið náði sóknarfrákastinu. Lakers vildi þó fá boltann og vildi meina að skotklukkan hefði runnið út.

Svo var ekki og því nýtti Boston alla leikklukkuna og hélt boltanum. Lykilatriði í leiknum. Boston skaut aftur en Lakers náði enn ekki frákastinu en dómarakast var niðurstaðan.

Derek Fisher vann það fyrir Lakers og Ron Artest flaug fram en brotið var á honum. Hann brenndi þó af báðum vítunum, þvílíkt klúður hjá kappanum.

Boston fékk boltann, 38,9 sekúndum fyrir leikslok, enn fimm stigum yfir. Eftir frábæra, en stutta sókn, skoraði Rondo frábæra körfu og kom Boston í 89-82 en enn voru 35 sekúndur eftir.

Lamar Odom skoraði fljótlega en Boston náði tíu sekúndna sókn áður en brotið var á einni allra bestu vítaskyttu deidlarinnar, Ray Allen. Hann hafði ekki klikkað á víti alla seríuna og byrjaði ekkert á því. Sjö stiga munur og sextán sekúndur eftir.

Lakers skoraði en það dugði ekki til, tíminn var of naumur og Boston landaði loks góðum 92-86 sigri.

Kobe Bryant skoraði 38 stig fyrir Lakers en næstur kom Pau Gasol með aðeins 12 stig en 12fráköst.

Hjá Boston var Paul Pierce með 27 stig, og bæði Kevein Garnett og Rajon Rondo báðir með 18.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×