Endalaus hjá ÍD: fimm stjörnur 22. febrúar 2010 01:00 Unun er að horfa á sýningu Íslenska dansflokksins, Endalaus.
Listdans ***** Endalaus Íslenski dansflokkurinn Dans og textahöfundur: Alan Lucien Öyen. Tónlist: Ólafur Arnalds. Ljós: Aðalsteinn Sigurðsson. Búningar: Elín Edda Árnadóttir. Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Cameron Corbett, Guðmundur Elías Knudsen, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Katrín Á. Johnson, Katrín Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Steve Lorenz. Er ástin spurning um orð eða framkvæmd? Eitthvað á þessa leið hafa þau spurt sig, ungu listamennirnir úr Íslenska dansflokknum sem settu saman sýninguna Endalaus sem nú er verið að sýna í Borgarleikhúsinu. Ástin getur verið frasi, leiður frasi, sjálfsagður hlutur, hversdagslegt hjal eða ofasfengin upplifun. Að dansa og á sama tíma sýna grafík á veggjum sem verður til um leið og orð og hreyfingar auk undirliggjandi og stundum ögrandi tónlistar blossar upp, er það sem við fáum að sjá. Liðugir líkamar sem segja sögur og sveigjast eftir höggum andstæðinga á fiman og flinkan máta. Höfundar sýningarinnar eru þeir Alan Lucien Öyen og Ólafur Arnalds. Alan Lucien Öyen hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Hann er danshöfundur frá Noregi sem leggur áherslu á ríkar tilfinningar og ljóðrænu í verkum sínum. Handritið er alfarið hans, en dansarar tala hér jöfnum höndum og gerir það verkið aðgengilegra kannski þeim sem óvanir eru hreinræktuðum dansi. Að vísu er hér talað á ensku, en hún er svo skýr þessi enska að allir ættu að skilja. Ólafur Arnalds semur tónlistina og hefur hann getið sér gott orð fyrir verk sín bæði í samvinnu við Sigur Rós og eins einn og sér. Hann blandar saman klassík og poppi og hér er hann svolítið eintóna en um leið ögrandi og tónarnir eiga mjög vel við undirliggjandi erfiðleika fólks sem komið er í kastþröng tilfinninga og orðasamskipta. Sófaborðið er á milli okkar eða kemur upp á milli okkar, eitthvað á þá leið mælir ein kona, og samtímis birtist sófaborð reyndar með öðrum húsgögnum teiknað snilldarlega á vegg og urgandi tónlist fylgir með. Þetta er sýning sem unun er að því að horfa á sama hvort heldur er ísmeygilegur dans eða smart grafík. Dansararnir voru hver öðrum betri og skemmtilegt að sjá hversu margbreytilegur hópurinn er, það eru greinilega ekki stærðarstaðlar í þessum dansflokki, allt í lagi að vera lítill og fínt að vera stór. Einstök atriði báru af eins og samskipti hjóna sem greinilega eru búin með kvótann í sínu samlífi og barátta upp á líf og dauða er sýnt á ofurfiman hátt af líkömum sem virtust breytast í gúmmí og almennt notkunin á rýminu sem stækkaði upp í allsherjar flæði og niður í smæstu kompur með töfrum ljósanna. Góð sýning fyrir alla. Elísabet Brekkan
Mest lesið Rán, Guðjón, Kristín og Stefán Máni hrepptu hnossið Lífið Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Lífið „Hann var of góður fyrir þennan grimma heim sem við búum í“ Lífið Jörundur og Magdalena selja íbúð á eftirsóttum stað Lífið Skinkukallinn er víða Lífið Enn einn breski erfinginn í heiminn Lífið Heitasta fólk Kópavogs blótaði þorrann á stærsta þorrablótinu Lífið Will Ferrell ætlar með Husavik á Broadway Lífið „Ef ég yrði sendiherra þá myndi eitthvað hræðilegt gerast“ Lífið Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Menning Fleiri fréttir Ómerkilegir þættir um merkilega konu Litríkar umbúðir en lítið innihald Illa bruggaðar Guðaveigar Vínartónleika skorti léttleika: Dansararnir stálu senunni Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Nýársswing með handbremsu Getuleysi á stóra sviðinu Barist um arfinn í Borgó Brostnar væntingar á Frostrósum Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Bríet olli vonbrigðum Sjá meira