Góð bæjarferð Hólmara - stórsigur og frumsýning á meistaramyndinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2010 10:15 Snæfellsliðið fagnar hér sigri síðasta vor. Mynd/Daníel
Snæfell er áfram í toppsæti Iceland Express deildar karla eftir tíu leiki eftir að liðið fór til Hveragerðis í gær og vann 24 stiga sigur á Hamar, 99-75. Þetta var sjöundi sigur leikur liðsins í röð í deildinni. Snæfellingar slógu tvær flugur í einu höggi í bæjarferðinni suður því eftir leikinn brunuðu þeir á Hvítu Perluna í Austurstræti í Reykjavík og horfðu á frumsýningu heimildarmyndarinnar "Leið Okkar Allra" sem Snæfell gefur út á DVD fyrir jólin ásamt strákunum í Illusion og Leikbroti. Myndin er um leið Snæfellsliðsins að fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins síðasta vor. Þetta var í fyrsta sinn sem Íslandsmeistaratitilinn í karlakörfunni fór norður fyrir Esjuna. Heimildamyndin er 37 mínútna löng og spannar allt á síðasta ári, viðtöl og annað tengt þessum sögulega sigri Hólmara sem voru búnir að bíða lengi eftir þeim stóra og oft búnir að komast næstum því alla leið. Aukaefni er á disknum, myndir frá síðustu leiktíð og þrír leikir eru einnig með í pakkanum; bikarúrslitaleikurinn gegn Grindavík, oddaleikurinn gegn KR í undanúrslitunum og oddaleikurinn gegn Keflavík í lokaúrslitunum. Í myndinni er farið yfir titlana á síðasta tímabili og þar eru viðtöl við marga eins og þjálfarann Inga Þór Steinþórsson, fyrirliðann Hlyn Bæringsson, liðstjórann Rabba, Hafdísi (móður Hlyns) og marga fleiri. Það er hægt að sjá kynninga á myndinni með því að smella hér. Það má því búast við að Ingi Þór og lærisveinar hans hafi snúið sáttir heim í Hólminn í nótt eftir velheppnaða bæjarferð.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira