Alvarlega brenndur eftir slys 30. júní 2010 04:30 Sprenging varð í járnblendiverksmiðjunni.
Einn maður er alvarlega slasaður eftir sprengingu í Járnblendiverksmiðjunni Elkem á Grundartanga í gærkvöldi. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeildinni liggur maðurinn þar alvarlega slasaður og þungt haldinn. Tilkynnt var um slysið um kvöldmatarleytið í gær og fékk þyrlan beiðni um hjálp um hálfátta leytið. Lent var með manninn í Fossvogi rétt fyrir klukkan níu, eftir að honum hafði verið veitt aðhlynning á slysstað. Að sögn Einars Þorsteinssonar, forstjóra verksmiðjunnar, er ekki vitað nákvæmlega hvað olli slysinu eða hver atburðarásin var, annað en að einhvers konar bruni hafi orðið í ofnhúsi á annarri hæð, þar sem maðurinn var við vinnu. Bruninn var mikill en ekki er víst að um sprengingu hafi verið að ræða, að sögn Einars. Þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi sagði hann unnið að því að ná stjórn á aðstæðum og tryggja að ekki færi á enn verri veg. Ekki var hægt að komast inn í húsið sökum eldsins fyrr en seint í gærkvöldi. Þá var unnið í því að komast að orsökum slyssins. - þeb
Innlent Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira