Körfubolti

Lakers getur sett sjö fingur á titilinn í nótt

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Úr þriðja leik liðanna í vikunni.
Úr þriðja leik liðanna í vikunni. GettyImages
Í nótt leika Los Angeles Lakers og Boston Celtics fjórða leik sinn í úrslitum NBA-deildarinnar. Staðan er 2-1 fyrir Lakers sem er í fínum málum í einvíginu.

Lakers vann síðasta leik, fyrsta heimaleik Boston af þremur. Mjög mikilvægur sigur þar sem Boston hefði hreinlega getað klárað seríuna á heimavelli.

"Það skiptir ekki máli hvar við spilum," segir Kobe Bryant. "Okkur líður þannig að ef við vinnum vinnuna okkar skiptur ekki máli hvar við erum, hvort sem það sé hér eða í Oklahoma, okkur líður alltaf vel," sagði Kobe.

Leikurinn hefst klukkan 01 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×