Körfubolti

Örvar: Héldum ekki haus í lokin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/Valli
Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/Valli

„Við bara sprungum í fjórða leikhluta,“ sagði Örvar Kristjánsson, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn í kvöld. Fjölnir tapaði fyrir Grindvíkingum  ,69-86,  í 10. umferð Iceland-Express deild karla en leikurinn fór fram í Grafarvogi.

Fjölnismenn voru með yfirhöndina lengi vel í leiknum og náðu til að mynda 15 stiga forskoti í byrjun þriðja leikhluta. 

 „Þetta var bara ekki nægilega gott hjá okkur í kvöld en við verðum að halda út allan leikinn á móti jafn góðu liði og Grindvík.Ég er nokkuð sáttur með hvað strákarnir mættu tilbúnir til leiks en ég er hundfúll hvað við erum fljótir að missa hausinn.

Grindvíkingar eru komnir með frábært varnarlið og gerðu okkur lífið leitt hérna í lokin, strákarnir voru þvingaðir í allt of erfið skot sem í raun fór með leikinn,“ sagði Örvar svekktur eftir tapið í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×