Intersport segir starfsfólk sitt svindla 2. júlí 2010 05:45 Fyrirtækið segir að sést hafi til starfsmanna veita skyldmennum afslátt sem þeir áttu ekki rétt á.
Forsvarsmenn Intersports telja starfsfólk á afgreiðslukössum verslunarinnar misnota aðstöðu sína til að selja skyldmennum sínum vörur með afslætti. Þetta kemur fram í svari fyrirtækisins til Persónuverndar. Intersport hefur krafið viðskiptavini sem kaupa vörur með afslætti um að gefa upp kennitölu til skráningar. Maður einn gerði athugasemdir við þetta til Persónuverndar sem leitaði skýringa frá Intersporti. Fyrirtækið sagði kennitöluskráninguna vera hluta af „innra eftirlitskerfi". Kassakerfið leyfi aukaafslátt á kassa vegna ýmissa mála. „Sést hafði, þótt erfitt að færa sönnur á það, að starfsfólk lét skyldfólk njóta ákveðinna kjara sem alla jafna hefðu ekki átt að vera í boði. Því var brugðið á það ráð að ekki væri hægt að veita aukaafslátt á kassa nema með því að skrá kennitölu viðkomandi viðskiptamanns," segir í skýringum Intersports. Persónuvernd segir skráningu kennitalnanna ekki hafa verið vegna viðskipta við kvartandann heldur í þágu eftirlits með starfsmönnum Intersports. „Niðurstaðan var sú að skráningin hafi ekki verið nauðsynleg vegna viðskiptanna og þar með ekki heimil," segir Persónuvernd. - gar
Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira