Körfubolti

Guðjón Skúlason: Komumst aldrei almennilega í gang

Elvar Geir Magnússon skrifar
Guðjón Skúlason.
Guðjón Skúlason.

Keflavík vann grannaslaginn gegn Njarðvík 78-72 í hörkuspennandi leik. Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, er ánægður með bæði stigin en telur lið sitt hafa verið langt frá sínu besta.

„Við vorum ekki að spila góðan leik fannst mér, náðum fínum köflum en komumst aldrei almennilega í gang. Þetta var ekki að ganga upp hjá okkur í fráköstum og vítanýtingu," sagði Guðjón eftir leikinn.

„Þetta var mjög harður leikur og stress í gangi. Ég er ánægður með að við náðum allavega að klára þetta. Við vissum að Njarðvíkingar kæmu brjálaðir til leiks enda að duga eða drepast fyrir þá. Það er sterkt fyrir okkur að vinna þetta."

Serbinn Lazar Trifunovic stigahæstur hjá Keflvíkingum en hann hefur verið að koma sterkurinn í liðið. „Hann hefur verið að gera vel en getur enn betur en hann sýndi í þessum leik. Hann hefur samt komið með aukna samkeppni í þessar stóru stöður, með meiri læti og ég er mjög ánægður með hann," sagði Guðjón.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×