Körfubolti

Einar Árni: Getum endað tímabilið með stæl

Stefán Árni Pálsson í ljónagryfjunni skrifar
Einar Árni Jóhannsson.
Einar Árni Jóhannsson.
,,Þetta var kærkomin sigur og gríðarlega mikilvægur," sagði Einar Árni Jóhannsson, annar þjálfari Njarðvíkinga, eftir sigurinn í kvöld. Njarðvík vann magnaði sigur gegn Keflvíkingum 104-102 eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni í Njarðvík.



„Við erum búnir að leggja mótið þannig upp að við verðum að ná í þrjá sigra af þeim leikjum sem við eigum eftir og þetta var einn af þeim. Um leið og liðið fær ákveðið sjálfstraust þá getum við unnið hvaða andstæðing sem er ,en það var sérstaklega gaman að klára leikinn í svona háspennuleik," sagði Einar Árni.



„Liðið gafst aldrei upp allan leikinn og strákarnir sýndu mikinn karakter í lokin og það er það sem við eigum eftir að taka með okkur í næstu leiki".

„Þó svo að varnarleikur okkar hafi ekki verið upp á marga fiska þá náum við að bæta það upp með fínum sóknarleik. Ef við náum að vinna þá leiki sem eftir eru þá eigum við eftir að fara inn í úrslitakeppnina í ágætis sæti og það er markmiðið," sagði Einar Árni sáttur eftir leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×