Körfubolti

Nýi Kani Fjölnismanna er nafni þess gamla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fjölnismenn hafa gert enn eina breytinguna á bandarískum leikmanni liðsins. Grafarvogsliðið lét Brandon Springer fara og fékk í staðinn nafna hans Brandon Brown. Brandon Brown spilar sinn fyrsta leik með Fjölni þegar liðið sækir KFÍ heim á Ísafjörð í kvöld.

Brandon Brown er 24 ára og 201 sm kraftframherji. Þjálfari liðsins, Örvar Þór Kristjánsson, segir að um taktíska breytingu að ræða því Fjölnisliðið hafi þurft á meiri ógn að halda inn í teignum.

Springer var búinn að spila með Fjölni síðan um áramót þegar hann leysti Ben Stywall af hólmi. Auk þess höfðu Fjölnismenn skipt um Bandaríkjamann á undirbúningstímabilinu.

Brandon Springer lék sjö deildarleiki með Fjölni og var með 22,7 stig og 10,0 fráköst að meðaltali í leik. Liðið vann aðeins 1 af þessum leikjum. Gegn Hamri í Hveragerði þar sem Springer var með 29 stig og 18 fráköst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×