Innlent

Auglýsa þjóðaratkvæðagreiðsluna

Innanríkisráðuneytið hefur birt auglýsingu um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram þann 9. apríl um Icesave-lögin, sem Alþingi samþykkti 16. febrúar síðastliðinn en forseti Íslands vísaði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þann 16. mars.

Spurninging eins og hún mun standa á atkvæðakjörseðlunum er eftirfarandi:

Lög nr. 13/2011 kveða á um heimild til handa fjármálaráðherra til að staðfesta samninga, sem áritaðir voru í London 8. desember 2010, um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi og greiðslu eftirstöðva og vaxta af þeim skuldbindingum.

Lögin voru samþykkt á Alþingi hinn 16. febrúar 2011 en forseti Íslands synjaði þeim staðfestingar.

Eiga lög nr. 13/2011 að halda gildi?

Svarkostirnir eru:

Já, þau eiga að halda gildi.

Nei, þau eiga að falla úr gildi.

Á vef Innanríkisráðuneytisins segir að atkvæðagreiðslan fari fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. „Munu einstök sveitarfélög auglýsa með venjulegum hætti nánar um kjörstaðina skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna, m.a. hvenær þeir eru opnir,  hvar þeir eru,  hvernig skipt er í kjördeildir, o.fl.  Kjósendur eru beðnir að kynna sér vel þær upplýsingar. Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarrétt til Alþingis,“ segir á heimasíðunni.

„Á vefsíðu Alþingis, althingi.is, undir dálkinum Efni um Icesave, er að finna frumvarpið sem varð að lögum nr. 13/2011, ásamt öllum skjölum er varða meðferð þess á þinginu,“ segir ennfremur á síðu ráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×