Innlent

Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Heimir Már ásamt Ingu Sæland formanni Flokks fólksins þegar hann tók viðtal við hana í Samtalinu með Heimi Má, þætti sínum á Stöð 2.
Heimir Már ásamt Ingu Sæland formanni Flokks fólksins þegar hann tók viðtal við hana í Samtalinu með Heimi Má, þætti sínum á Stöð 2. Vísir/Vilhelm

Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins biðst afsökunar á færslu sinni á samfélagsmiðlinum X, sér í lagi til vísunar til kjarnorkuvopna. Hann segir orðin eiga sér engar málsbætur, um sé að ræða persónulega færslu sem tengist á engan hátt störfum hans fyrir Flokk fólksins.

Heimir Már skrifaði í gær ummæli við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem hann hvatti forsetann til að senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn tilbúin. Í færslunni vottaði Macron Úkraínumönnum samúð vegna drónaárásar Rússa í Dnipro. Hann hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Vísir hefur ítrekað reynt að ná tali af Heimi án árangurs. Hann segist í yfirlýsingunni að öðru leyti ekki munu tjá sig um málið. 

„Vegna umfjöllunar um athugasemd sem ég skrifaði á samfélagsmiðlinn X í gær vil ég biðjast afsökunar á orðalagi mínu, sér í lagi vísun til kjarnorkuvopna. Þau orð eiga sér engar málsbætur og hefðu betur verið ósögð og hef ég nú eytt færslunni,“ segir Heimir Már í yfirlýsingu.

„Ég ítreka að hér var um persónulega færslu af minni hálfu að ræða sem tengist á engan hátt störfum mínum fyrir þingflokk Flokks fólksins og er ekki í neinu samræmi við stefnu eða gildi flokksins. Ég harma að þessi færsla mín hafi verið bendluð við flokkinn og bið félaga mína í Flokki fólksins innilega afsökunar á því.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×