Körfubolti

NBA í nótt: Enn tapar Miami fyrir bestu liðunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Miami tapaði fyrir Chicago, 87-86, á heimavelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Miami hefur aðeins unnið einn af níu leikjum sínum gegn fimm bestu liðum deildarinnar.

Chicago vann því alla þrjá leiki sína gegn Miami á tímabili og kom sér upp í annað sæti Austurdeildarinnar á kostnað Miami sem er nú í því þriðja. Boston er sem fyrr á toppnum.

Eins og tölurnar bera með sér var leikurinn æsispennandi. Miami var með frumkvæðið framan af en Chicago náði að komast yfir í fjórða leikhluta.

Staðan var 84-79, Chicago í vil, þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum. Miami skoraði þá sjö stig í röð og komst yfir, 86-84. Þar af skoraði Mario Chalmers fimm stig en þau reyndust vera síðustu fimm stig frá Miami í leiknum.

Brotið var á Luol Deng þegar sautján sekúndur voru eftir og fór hann á vítalínuna. Hann nýtti fyrra skotið sitt en það síðara geigaði. Mike Miller reyndi að ná frákastinu en villa var dæmd á hann fyrir að keyra í Deng í þeirri baráttu og fór þá síðarnefndi því aftur á vítalínuna.

Umdeild ákvörðun en í þetta sinn nýtti Deng bæði vítin sín og kom Chicago yfir, 87-86. Þarna voru um fimmtán sekúndur eftir en varnarleikur Miami hélt haus í lokin og hvorki LeBron James né Dwyane Wade komu skotum sínum í körfuna. Tíminn rann út og Chicago fagnaði dýrmætum sigri.

Þetta var fjórða tap Miami í röð en gengi liðsins gegn betri liðum deildarinnar gefur ekki ástæðu til að áætla gott gengi í úrslitakeppninni í vor.

James skoraði 26 stig í leiknum, Chris Bosh 23 og Wade 20. Hjá Chicago var Derrick Rose stigahæstur með 27 stig en Deng skoraði átján.

LA Lakers vann San Antonio, 99-83. San Antonio er með bestan árangur allra liða í deildinni en Lakers er núverandi meistari og vann í nótt sinn sjöunda leik í röð. Kobe Bryant skoraði 26 stig fyrir liðið og Pau Gasol 21.

Boston vann Milwaukee, 89-83. Paul Pierce skoraði 23 stig og Kevin Garnett var með fjórtán stig og ellefu fráköst. Þetta var fimmti sigur Boston í röð.

New Orleans vann Cleveland, 96-81, og styrkti möguleika sína á að komast í úrslitakeppnina en liðið er í sjötta sæti Austurdeildarinnar. Chris Paul, leikstjórnandi Hornets, fékk þó heilahristing í þriðja leikhluta og missir af leik liðsins í kvöld.

Paul var með þrettán stig og ellefu stosðendingar. David West var stigahæstur með 23 stig en Marco Belinelli skoraði átján.

Memphis vann Dallas, 104-103. Zach Randolph skoraði sigurkörfu Memphis þegar 0,3 sekúndur voru til leiksloka.

New York vann Atlanta, 92-79. Amare Stoudemire skoraði 26 stig fyrir New York og Landry Fields fimmtán í öruggum sigri New York. Carmelo Anthony skoraði fjórtán stig en hann var potaður í augað í fyrsta leikhluta og fékk svo höfuðhögg í öðrum.

Oklahoma City vann Phoenix, 122-118, í framlengdum leik. Russell Westbrook skoraði 32 stig og var með ellefu stoðsendingar og James harden var með 26 stig fyrir Phoenix.

Philadelphia vann Golden State, 125-117, í framlengdum leik. Andre Iguodala var með fimmtán stig, ellefu fráköst og tíu stoðsendingar og náði þar með þrefaldri tvennu í sínum öðrum leik í röð.

Detroit vann Washington, 113-102. Charlie Vellanueva skoraði sextán stig, öll í öðrum leikhluta, fyrir Detroit. John Wall var með 24 stig og sjö stoðsendingar fyrir Washington.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×