Snæfell getur orðið deildarmeistari í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2011 14:30 Snæfell vann fyrsta titil tímabilsins. Mynd/Daníel
Snæfell getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld verði úrslit kvöldsins þeim hagstæð. Vinni Snæfell sigur á Hamar í Hólminum á sama tíma og KR tapar sínum leik á móti ÍR í Seljaskóla þá fer deildarmeistaratitilinn á loft í Fjárhúsinu. Nái KR-ingar fleiri eða jafnmörgum stigum og Snæfell í kvöld þá tryggja þeir sér úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn við Snæfell í DHL-höllinni á fimmtudagskvöldið. KR þarf að vinna með leikinn á fimmtudaginn með meira en fjórtán stigum haldi Snæfell enn tveggja stiga forskoti eftir leiki kvöldsins því Snæfell vann fyrri leik liðanna 94-80 í Hólminum í desember. KR hefur unnið deildarmeistaratitilinn undanfarin tvö tímabil en Snæfell varð deildarmeistari í fyrsta og eina skiptið árið 2004 eða fyrir sjö árum síðan. Liðið endaði í 6. sæti í deildinni þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Grindavík getur náð Snæfelli að stigum en á samt ekki möguleika á að vinna deildarmeistaratitilinn þar sem Snæfell vann báða innbyrðisleiki liðanna í vetur. Grindavík getur hinsvegar komist upp fyrir KR á innbyrðisleikjum verði þau jöfn að stigum.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira