Íslenski boltinn

Matthías með tvö í fyrsta leik - FH vann Fylki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson skoraði bæði mörk FH þegar liðið vann 2-0 sigur á Fylki í Lengjubikarnum í fótbolta í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Matthíasar síðan að hann kom til baka eftir að hafa verið í láni hjá enska liðinu Colchester.

Það tók Matthías aðeins 40 sekúndur að skora en hann skallaði þá boltann í markið eftir fyrirgjöf frá Ólafi Pál Snorrasyni.

Matthías skoraði síðan seinna markið úr vítaspyrnu á 78. mínútu sem Björn Daníel Sverrisson fékk en fjórtán mínútum áður hafði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, fengið að líta rauða spjaldið hjá Kristni Jakobssyni.

Upplýsingar um leikinn eru fengnar af fótbolti.net en það má lesa meira um leikinn með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×