Körfubolti

Fá mögulega þriggja mánaða bann fyrir slagsmál

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Davíð Páll Hermannsson, leikmaður Hauka, gæti verið á leið í langt bann.
Davíð Páll Hermannsson, leikmaður Hauka, gæti verið á leið í langt bann. Mynd/Arnþór
Leikmennirnir sem slógust í viðureign Hauka og KFÍ í Iceland Express-deild karla í gær gátu átt yfir höfði sér þunga refsingu.

Allt ætlaði um koll að keyra þegar upp úr sauð á milli þeirra Davíðs Páls Hermannssonar, leikmanni Hauka, og Darco Milosevic hjá KFÍ.

Þeir hafa nú verið kærðir fyrir slagsmál en samkvæmt reglum KKÍ um viðurlög við agabrotum gætu þeir fengið allt að tólf leikja eða þriggja mánaða leikbann fyrir „alvarlega grófan leik, ofsalega framkomu eða líkamsmeiðingar [...]".

Sex aðrir leikmenn, þrír úr hvoru liði, var einnig vikið úr húsi en þeir hafa verið kærðir fyrir að koma inn á völlinn í leyfisleysi af varamannabekknum. Slíkt er stranglega bannað en hefur þó ekki endilega í för með sér að viðkomandi leikmenn verði dæmdir í keppnisbann, sérstaklega ef um fyrstu brottvísun viðkomandi leikmanna er að ræða á tímabilinu.

Það eru því aðeins tveir fyrstnefndu leikmennirnir sem voru kærðir fyrir slagsmálin sem áttu sér stað á Ásvöllum í gær.

Hinir leikmennirnir sex eru Gerald Robinson, Óskar Ingi Magnússon, Steinar Aronsson (allir í Haukum), Ingvar Viktorsson, Nebojsa Knezevic og Carl Josey (KFÍ).

Aga- og úrskurðarnefnd mun styðjast við skýrslu dómara leiksins og getur einnig farið fram á upptöku af leiknum, sé hún til. KKÍ gerir ekki þær kröfur til félaganna að allir leikir séu teknir upp. Þó er vitað til þess að Haukar hafi tekið upp leikinn.

Deildarkeppninni lauk í gær og hefst úrslitakeppnin ekki fyrr en á fimmtudaginn næsta. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ kemur næst saman á þriðjudaginn, nema að boðað verði til aukafundar.

Haukar unnu umræddan leik og tryggðu sér þar með áttunda sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni. Þeir munu mæta deildarmeisturum Snæfells í fyrstu umferðinni. Það kemur síðar í ljós, væntanlega á þriðjudaginn, hvort að þeir verði án einhverra þeirra leikmanna sem var vikið af velli í gær.

KFÍ féll í 1. deildina og eru leikmenn liðsins því komnir í frí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×