Körfubolti

KR-ingar unnu deildarmeistarana með 23 stigum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Vilhelm
KR-ingar tryggðu sér annað sætið í Iceland Express deild karla og leiki gegn Njarðvík í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar með því að vinna sannfærandi 23 stiga sigur á nýkrýndum deildarmeisturum Snæfells í lokaumferð deildarkeppninnar í gærkvöldi.

KR-ingar skoruðu 25 stig eða meira í öllum fjórum leikhlutunum þar af vann liðið þriðja leikhlutann 38-23. KR hafði hikstað í síðustu tveimur leikjum en bikarmeistararnir sýndu styrk sinn á móti Hólmurum í gær.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum í DHL-Höllinni í gærkvöldi. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×