Körfubolti

Brynjar: Markmiðið er að klára þetta á föstudagskvöldið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson lék vel með KR-liðinu á báðum endum vallarins í kvöld þegar bikarmeistararnir unnu sannfærandi 18 stiga sigur á Keflavík í Toyota-höllinni. Brynjar var mjög ákveðinn í öllum sínum aðgerðum og endaði leikinn með 17 stig.

„Þetta var virkilega ljúfur sigur og við náðum að enda ellefu leikja sigurgöngu Keflavíkur á heimavelli. Það er frábært að gera það í úrslitakeppnini og í svona stórum leik. Markmiðið er núna bara að klára þetta á föstudagskvöldið," sagði Brynjar Þór Björnsson.

„Það var mikil keyrsla sem lagði grunnin að þessum sigri. Við keyrðum upp völlinn við hvert tækifæri og náðum að halda hraðanum uppi. Það kom smá bakslag í þriðja leikhluta en körfubolti er leikur áhlaupa ef ég kem með eina góða klisju," sagði Brynjar í léttum tón.

„Þeir komust aðeins yfir en þá tók bara Marcus við sér og setti niður nokkrar risa körfur. Hann er búinn að vera frábær. Við erum með frábært lið og Hreggi kom líka sterkur inn. Við áttum helling inni frá því í síðasta leik. Mér fannst mikið talað um að Keflavík ætti mikið inni en við áttum það líka," sagði Brynjar en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×