Golf

Björn á slæmar minningar frá Sandwich

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Thomas Björn spilaði frábærlega í dag.
Thomas Björn spilaði frábærlega í dag. Nordic Photos/AFP
Daninn Thomas Björn er efstur þegar líður að lokum fyrsta dags á Opna breska meistaramótinu í golfi. Björn spilaði á fimm höggum undir pari í dag. Björn hefur aldrei unnið stórmót en komst næst því á Royal St. George's vellinum fyrir átta árum. Sama velli og mótið fer fram í ár.

Á lokahringnum fyrir átta árum fékk Björn skolla á 15. holu. Þrátt fyrir það hafði hann tveggja högga forskot þegar þrjár holur voru eftir og kominn með aðra höndina á Silfurbikarinn. Á 16. holunni fór hins vegar allt úrskeiðis.

Upphafshöggið rataði í sandgryfju og það tók hann tíma að komast upp úr henni. Í tveimur fyrstu skotum hans rann kúlan aftur ofan í gryfjuna. Hann spilaði holuna á fimm höggum yfir pari og gaf frá sér sigurinn á mótinu.

„Þessi hola skuldar engum neitt frekar en aðrar holur eða aðrir vellir. Ég spilaði frábærlega alla vikuna en klúðraði þessu á 16. holu. Það gerist í golfi,“ sagði Björn við breska fjölmiðla.

Á hring dagsins sendi Björn upphafshöggið aftur í sandgryfjuna sem varð til þess að enn fleiri rifjuðu upp baráttu Danans við sandinn fyrir átta árum. Í þetta skiptið var nægur kraftur í högginu, boltinn skoppaði vel og hann púttaði fyrir fugli.

Upphaflega átti Björn ekki að vera meðal þátttakenda á mótinu en hann datt inn í kjölfar meiðsla Vijay Singh. Árið hefur verið erfitt hjá Dananum en faðir hans lést fyrr á árinu.

„Ég held að hann hefði verið mjög stoltur af spilamennsku minni í dag,“ sagði Björn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×